#1 Pox. Þetta þarf ekki að ræða. HM95-glansmyndapoxið var best.
#2 Super Soaker. Hvað varð um gömlu góðu vatnsstríðin?
#3 Þetta armband sem maður „smellti“ á úlnliðinn… Mjög svalt.
#4 Tölvugæludýr. Maður svaf varla á nóttunni útaf þessu.
#5 Jójó. Og að vera með jójó-smellu í beltinu var það allra harðasta… Það og að mæta á jójókeppni í Borgarkringlunni.
#6 G-Shock úr. Varist eftirlíkingar börnin góð!
#7 Skip it. Maður þurfti engan leikfélaga þegar maður gat verið úti á stétt með skip-it á löppinni.
#8 Game Boy. Hið heilaga Gral tíunda áratugarins!













