KVENNABLAÐIÐ

Jólarjómaís með Baileys, Irish cream súkkulaði og piparkökum – frá Eldhúsperlum

„Eitt það skemmtilegasta og jólalegasta sem ég gerir fyrir jólin er að búa til jólaísinn,“ segir Helena hjá Eldhúsperlum.

„Þegar ég var lítil og hékk í svuntufaldinum á mömmu þótti mér svo miklu skemmtilegra að hjálpa henni að gera ísinn heldur en að baka smákökur. Ég beið spennt eftir ískvöldinu og mér fannst alveg ömurlegt ef ég missti af því, sem gerðist reyndar afar, afar sjaldan. Mamma hrærði eggin og sykurinn inni í búri í hávaðasömustu Kenwood hrærivél sem sögur fara af og rjóminn var þeyttur frammi í eldhúsi á meðan. Svo komst friðurinn á aftur og þegar öllum hráefnunum var blandað rólega saman varð úr dásamleg ísblanda sem breyttist svo í besta ís sem til er.

Ég geri alltaf okkar hefðbundna jólaís sem samanstendur af sjerríi, muldum makkarónukökum og súkkulaði. Í ár ákvað ég að gera líka nýja tegund eftir að hafa fengið á heilann að piparkökur og Baileys hlyti bara að passa saman eins og hönd í hanska. Sem það gerir. Ísinn er einstaklega góður, hann er svo góður að þið verðið að prófa. Trúið mér. Ég nota alltaf sömu grunnuppskrift í ís sem samanstendur af 6 eggjum, 6 matskeiðum af sykri og hálfum líter af rjóma. Þetta er uppskriftin sem mamma kenndi mér og góð kona kenndi henni. Hún er einföld og virkar alveg þrusu vel.“

Jólaís með Baileys, Irish cream súkkulaði og piparkökum:

  • 6 egg
  • 6 msk sykur
  • 1/2 líter rjómi
  • 200 gr piparkökur
  • 2 plötur Pipp súkkulaði með Irish cream (eða 200 gr gott rjómasúkkulaði eða karamellufyllt súkkulaði)
  • 1/2 – 1 dl Baileys (eftir smekk ég notaði alveg 1 dl, vildi finna Baileys bragð)

Aðferð: Myljið piparkökurnar frekar fínt, allt í lagi að hafa smá bita. Saxið súkkulaðið og þeytið rjómann. Þeytið eggin og sykurinn í hrærivél eða með rafmagnsþeytara þar til mjög ljós og hafa margfaldast að stærð. Þetta tekur um 5 -7 mínútur. Gætið þess að þeyta eggin vel annars skilur ísinn sig þegar hann frýs.

Blandið rjómanum varlega saman við eggjablönduna með sleikju ásamt Baileys, súkkulaðinu og piparkökunum (takið smá frá af piparkökunum til að dreifa yfir í lokin). Hrærið hægt og rólega þar til allt hefur blandast saman. Ég mæli eindregið með að smakka blönduna á þessum tímapunkti og athuga hvort þið viljið meira Baileys.

Hellið í box eða form og frystið. Það þarf ekki að hræra í ísnum á meðan hann er að frjósa, einn af kostum þess að nota áfengi í ís er að það myndast mun minni ískristallar í ísnum. Ég tek þó fram að ísinn myndi ég ekki gefa börnum, sérstaklega ekki ef þið notið allt Baileys-ið. ..Það er líka til nóg af öðru góðu handa þeim og allt í lagi að fullorðna fólkið fái stundum fullorðins nammi. Takið ísinn úr frysti 15-20 mínútum áður en þið berið hann fram og njótið út í ystu æsar. Það eru nú einu sinni jólin!

Uppskrift frá Eldhúsperlur

heilsutorg

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!