KVENNABLAÐIÐ

Kourtney Kardashian (36) og Justin Bieber (21) heitasta par Hollywood?

Sjóðheitt ef satt reynist! Kourtney Kardashian, sem sleit áralöngu sambandi við barnsföður sinn, Scott Disick í júlí sl. náðist á filmu sl. föstudagskvöld með engum öðrum en stóðfolanum Justin Bieber, en ekki er um að villast að hin þriggja barna móðir er komin með ungan elskhuga upp á arminn.

Að sögn US Weekly geislaði Kourtney sem aldrei fyrr af kynþokka í klæðilegum hvítum samfesting, en hið nýja par eyddi kvöldinu á skemmtistaðnum The Nice Guy sem rómaður er fyrir að hýsa fræga fólkið í mekka skemmtanaiðnaðarins í Los Angeles.

taa30053_0

Parið sást yfirgefa staðinn síðla kvölds og enduðu á karaoke staðnum Blind Dragon. Ónefndur heimildarmaður hermdi að vel hefði farið á með parinu:

Þau fóru á karaoke staðinn ásamt fleiri vinum, en þegar líða tók á kvöldið fór Justin inn í eitt af einkaherbergjunum á staðinum, en Kourtney yfirgaf svæðið rúmum klukkutíma áður en Justin fór.

Þá kemur einnig fram á slúðurvefnum TMZ að Kourtney hafi sett stefnuna á fimm stjörnu hótel í Beverly Hills þar sem Bieber er tíður gestur og ekki yfirgefið hótelið fyrr en kl. 4 þá um nóttina.

taa2ffd6_0

Þetta mun þó ekki í fyrsta sinn sem Bieber og Kourtney sjást saman á almannafæri en orðrómurinn hefur verið lengi á sveimi og náðust þau þannig á mynd í október, er þau snæddu kvöldverð saman á sama næturklúbbinum áður en þau urðu samferða í Universal Studios.

taa38369_0

Bieber gerði gott betur og deildi ljósmynd af þeim Kortuney á Instagram, en á ljósmyndinni mátti sjá parið með þrívíddargleraugu en myndin var tekin í Halloween Horror Nights skemmtigarðinum og mátti sjá að þau skemmtu sér konunglega kringum Hrekkjavökuna.

taa0116a_0

Þó atvikaskipan kunni að koma mörgum á óvart, er Bieber þó ekki ókunnur þeim Kardashian og Jenner systrum, en hann hefur meðal annars náð góðum tenglsum við elsta son Kourtney, Mason, sem er fimm ára gamall, myndaþáttur af þeim Bieber og Kendall birtist í Vogue fyrr á þessu ári og þess utan er einn af umboðsmönnum hans, Corey Gamble, unnusti móður Kourtney, sjálfrar Kris Jenner.

ta4d81fb_0_0_0

Sem áður sagði sleit Kourtney áralöngu sambandi þeirra Scott Disick, sem er 32 ára gamall, í júlí á þessu ári en fer vel á með fyrrum parinu sem hefur gert sitt allra besta til að viðhalda góðum tengslum, barnanna vegna. Scott lauk strangri áfengismeðferð í síðasta mánuði og hafa þau verið mynduð við ófá tækifæri saman allt frá útskrift Scott, en parið á þrjú börn saman; Mason, sem er fimm ára gamall, Penelope, sem er þriggja ára gömul og Reign, sem er 11 mánaða.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!