KVENNABLAÐIÐ

Fyrir-og-eftir myndir af hundum sem átti að lóga

Trúir þú að um sama hundinn sé að ræða á báðum myndum? Ótrúleg en sönn dæmi þess að ekki eigi að gefast upp á yndislegu ferfætlingunum þó eitthvað kunni að vera að útlitslega eða heilsufarslega. Dásamlegar fréttir er eitthvað sem við þurfum virkilega á að halda, ekki satt? Hugum vel að gæludýrunum okkar um hátíðirnar…

resc1

Að horfa á elsku dýrið er nægilegt til að maður fari að gráta. Andlegt og líkamlegt álag sést augljóslega á greyinu enda er hann ofboðslega horaður og hárlaus, og beinin standa hreinlega út allstaðar á líkamanum. Síðan Cedar komst til góðrar fjölskyldu hefur hann verið „glaðasti hundur í heimi!“ Sjáið bara hvað hann er með fallegan feld.

resc alana2

 

Þetta er Alana sem fannst úti á götu með feldinn allan klesstan og ómögulegt að vita hvernig hún gat hreinlega séð út. Hún fékk inni í hundaskýli og var ættleidd af fólki sem hélt í raun að hún væri miklu eldri en hún er í raun og veru. Í dag er hún afskaplega falleg og ánægð tík á nýja heimilinu sínu!

resc3

resc3 ellen

 

Elsku vinurinn hraktist um heimilislaus í Montreal, Kanada áður en starfsfólk neyðarskýlis fyrir hunda fann hann. Hafði hann sennilega haldið sér hita með þessum furðulega feldi í köldu vetrarveðri.

 

resc6 1

 

Þessi dásamlegi voffi fannst í ruslatunnu. Hún fékk viðeigandi læknismeðferð og skjól. Seinni myndin er tekin aðeins þremur mánuðum eftir að henni var bjargað. Lífsbjörg góðs fólks.

 

resc7 vita

 

Vita fannst á ruslahaug í Los Angeles allt of grannur fyrir sína tegund. Hann var við dauðans dyr en var bjargað á hárréttum tíma. Margir mánuðir af heilsusamlegri næringu, mikil hjálp frá dýralækni og mikla þolinmæði varð hann loksins eins heilbrigður og hann gat orðið og er afar hamingjusamur og breyttur í dag!

 

resc 8 iggy

 

resc 8 iggy 2

Fyrstu tvær myndirnar eru af Iggy þar sem hann fannst á víðavangi með skelfilega augnsýkingu. Þökk sé samfélagsmiðlum fékk Iggy nægilega marga styrki til að fara yfir til Bandaríkjanna til að fá hjálp. Þvílíkur stuðningur og ást sem hann fékk – annað tækifæri í lífinu og hann er bara æðislegur :)

 

resc4 1

Þessi ljúfi voffi fékk nafnið Shrek – og var erfitt að sjá hverrar tegundar hann var. Þegar hann var tekinn í hundaskýli, hreinsaður og rakaður mátti sjá 6 ára maltese sem hafði einu sinni verið í „puppy mill“ eða hundaverksmiðju.

resc10

 

Þessi hræddi og horaði hvolpur heitir Kenzi. Honum var bjargað af Cocker Spaniel Rescue í Austin og San Antonio í Bandaríkjunum og hefur hann nú fengið aftur sinn fyrri styrk og er orðinn heilbrigður. Hann lítur allavega út fyrir að vera afar hamingjusamur!

resc11 1

 

„Þegar við ættleiddum Dexter var hann svo örgrannur, bara um 8 kíló og hafði engan áhuga á að hreyfa sig né nokkuð annað. Núna er hann næstum 30 kíló og hefur farið í sína fyrstu alvöru fjallgöngu, um 8 kílómetra göngu. Sjáið hvað hann er kátur!“

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!