KVENNABLAÐIÐ

Daniel Radcliff yfirkrúttar sem barnungur Harry Potter í fyrstu áheyrnarprufunni

Eins og Daniel Radcliffe sé ekki nægilega sætur á fullorðinsaldri! Nýverið rataði upp á yfirborðið áheyrnarprufa Radcliffe fyrir rullu Harry Potter sem hann síðar landaði en eftirleikurinn er öllum kunnur.

Á ótrúlegu myndbandinu má sjá barnungan Radcliffe spjalla við staðgengil Hagrid um drekaegg og galdrasteina og eldvarnir í timburhúsum og krúttstigið er svo svaðalegt að Radcliff sprengir alla skala.

Í einni klippunni flissar Radcliff að ímynduðu drekaeggi, en í næsta atriði sem fylgir beint í kjölfarið bregður barnið (einmitt, því þarna er hann bara barn að aldri) undir sig betri fætinum og ræðir alvarlegur í bragði við Síríus um morðið á móður sinni.

Samt smellur heildarmyndin ekki saman fyrr en Radcliff er beðinn um að máta kringlótt gleraugu, en fyrst prófar hann gleraugu í stærri kantinum og svo skiptir hann um og setur upp nýja umgjörð með þeim afleiðingum að gæsahúð hríslast um áhorfandann:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!