KVENNABLAÐIÐ

Maður reyndi að nauðga konu: Konan lamdi hann í stöppu

Ofbeldisfullur nauðgari var kýldur og blóðugur eftir að hann reyndi að nauðga konu í Sheffield í Bretlandi í síðasta mánuði.

 

„Hann á ekki eftir að reyna að nauðga konu aftur,“ sagði saksóknarinn í máli Johnathon Holmes þegar hann var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi.

Konan bar þess vitni að hann hefði elt hana snemma morguns nokkra kílómetra áður en hann réðist til atlögu og fleygði  henni inn í runna.

Sem betur fór áttaði hún sig á að maðurinn var í raun að elta hana þannig hún hafði lyklana sína í höndinni til að nota sem vopn. Einnig hafði hún hringt í maka sinn og sagt honum frá áhyggjum sínum.

faviti

 

Johnathon neyddi hana til að leggjast á bakið og á meðan hann var að reyna að komast ofan á hana sagði hann: „Þú átt eftir að fíla þetta.“

Þegar hann tróð tungunni upp í hana af offorsi beit hún saman tönnunum eins fast og hún gat. Hann sleppti takinu þannig hún náði yfirhöndinni með lyklana í andliti hans og öskraði á hjálp, greindi hún frá í réttarsalnum.

Tveir vegfarendur í nágrenninu heyrðu öskrin og reyndi nauðgarinn að flýja. Þá vildi ekki betur til en hann datt  á lestarteinum og slasaði sig enn meira.

Hann valdi svo sannarlega ranga konu að ráðast á.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!