KVENNABLAÐIÐ

Hryggbrotinn Jamie Foxx (47) grætur Nicole Scherzinger (37) – „In Love By Now“

Jamie Foxx er niðurbrotinn í sjóðheitri ballöðu þar sem stóðfolinn sjálfur flytur ljúfsáran óð til ímyndaðrar unnustu sem skilur hann eftir við altarið, en melódían ber nafnið In Love By Now og er að finna á nýjustu breiðskífu Foxx, Hollywood: A Story of a Dozen Roses, sem út kom fyrr á þessu ári.

Söguþráðurinn rekur sára atburðarás á sjálfan brúðkaupsdaginn, en George Lopez fer með hlutverk prestsins gefa á hjónin saman og það er engin önnur en Nicole Scherzinger sem flýr eigin örlög á ögurstundu og kastar frá sér brúðarvendinum.

Ekki er langt síðan gullbarkinn, stórleikarinn og kyntáknið Jamie Foxx sór og sárt við lagði að hann ætti ekki í kynferðissambandi við Katie Holmes, fyrrum eiginkonu Tom Cruise en hann hefur verið bendlaður við ófáar glæsikonur gegnum tíðina, án þess þó að ganga nokkru sinni í hnapphelduna. Foxx hefur þannig löngum þótt annálaður kvennamaður og því magnað að sjá Foxx flytja jafn sáran óð um vonbrigði í einkalífinu. 

Ljúft í vikulok og verðug áminning þess að kyntákn geta líka farið halloka í einkalífinu: 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!