KVENNABLAÐIÐ

Adele flytur ENN EINN STÓRSMELLINN – frumflutti Water Under The Bridge hjá Jimmy Fallon

Enn streymir melódísk snilldin frá Adele, en breiðskífa hennar sem ber heitið 25, kom út í þessari viku með pompi og prakt. Nýja platan hefur þegar selst í bílförmum vestanhafs, ef svo má að orði komast, en stúlkan hafnaði boði Spotify og TIDAL svo eitthvað sé nefnt og er einungis hægt að nálgast breiðskífuna eftir hefðbundum leiðum – að kaupa hana á iTunes eða beint út úr verslun.

Þar með er þó ekki sagt að Adele sé hætt að kynna breiðskífuna, því hún tróð upp hjá Jimmy Fallon og flutti þar metsmellinn Water Under The Bridge sem samið er til fyrrum elskhuga hennar:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!