KVENNABLAÐIÐ

Tíu algeng grundvallarmistök í byrjun vinnudags

Fyrstu mínútur vinnudagsins geta ráðið úrlsitum um hversu mikið þér verður úr verki yfir daginn.

Breska blaðið Independent telur upp tíu algeng mistök sem fólk gerir í byrjun dags, sem geta orðið til þess að allt verður í rugli frameftir degi og afköstin lítil og léleg.

1. Ekki mæta of seint
Með því að mæta of seint í vinnuna geturðu eyðilagt vinnudaginn fyrir þér áður en hann hefst. Samkvæmt könnun, sem Huffington Post gerði nýlega grein fyrir, hafa yfirmenn einnig tilhneigingu til að álykta að þeir sem mæti seint séu ekki jafn samviskusamir og hinir, jafnvel þótt þeir seinu fari heim seinna. Vertu traustvekjandi og mættu á réttum tíma.

2. Bjóddu góðan dag
Þú getur gefið jákvæðan tón fyrir daginn og lyft sjálfum þér og öðrum upp með því að gefa þér tíma til að kasta kveðju á vinnufélagana og jafvel gefa þér nokkrar mínútur í spjall. Ekki vera hrokagikkur og leiðindaskjóða.

3. Farðu hægt í kaffidrykkjuna
Ef þú ert ekki sú manngerð sem sturtar í þig einum kaffibolla um leið og þú ert komin framúr rúminu þá eru samt yfirgnæfandi líkur á því að þú fáir þér kaffi um leið og þú kemur í vinnuna. Það er þó misráðið.

Rannsóknir benda til að heppilegst sé að drekka ekki kaffi fyrr en eftir 09:30, vegna þess að stresshormónaframleiðsla líkamans er í hámarki milli 08 og 09. Ef drukkið er kaffi á þessum tíma dags dregur líkaminn úr framleiðslu á hormóninu og líkaminn treystir þá frekar á kaffið. Þegar svo hægir enn á þessu eftir hálf tíu þá þarftu frekar á trukki frá kaffinu að halda.

4. Ekki fara beint í að svara öllum tölvupóstum
Um leið og þú sest við tölvuna er freistandi að byrja að plæga sig í gegnum alla þá tölvupósta sem borist hafa kvöldið áður. Þetta er ekki ráðlegt þar sem auðvelt er að missa sig í þessu og brenna dýrmætum tíma. Heppilegra er að renna fljótt yfir pósthólfið, athuga hvort þar liggi eitthvað áríðandi, afgreiða það og sinna rest síðar.

5. Ekki dempa þér blint í vinnuna
Farðu eftir áætlun. Athugaðu hvað er fyrirliggjandi og hvort þú þurfir að undirbúa þig sérstaklega fyrir símtöl eða fundi. Annars áttu á hættu að standa uppi ráðvilltur þegar á hólminn er komið.

6. Ekki byrja á auðveldustu verkefnunum
Samkvæmt rannsóknum á orka þín og viljastyrkur til að dofna eftir því sem líður á daginn og því er áríðandi að koma mikilvægustu verkefnunum frá eins fljótt og mögulegt er. Sumir vitna í Mark Twain og kalla þessa aðferð „að borða froskinn“ með vísan til þessa sem haft hefur verið eftir rithöfundinum: „Byrjaðu daginn á því að borða lifandi frosk og þá mun ekkert verra henda þig það sem eftir lifir dags.“

Smelltu HÉR til að lesa greinina til að enda:

heilsutorg