KVENNABLAÐIÐ

Sólargeisli! – Sjö ára gamall ZUMBAKENNARI rúllar upp BEYONCÉ hjá ELLEN!

Hann heitir John Bughaw og er sjö ára gamalt undrabarn sem hefur, með dansfimi sinni, gjörsamlega heillað heimsbyggðina upp úr skónnum. Ellen DeGeneres fékk hann til að koma í þáttinn til sín – ekki einu sinni, heldur tvisvar og hér er barnið, sem er frá Filipseyjum og sló í gegn á YouTube (hvar annars staðar).

Myndböndin eru tvö talsins, hið fyrra er nýrra og sýnir Bughaw litla sýna snilldartakta við Single Ladies eftir Beyoncé en seinna myndbandið sýnir barnið veita Ellen viðtal á filippeysku með aðstoð túlks en í það skiptið dillar hann mjöðmunum við smellinn Bang Bang eftir Jessie J og gefur sér eldri og reyndari dönsurum ekki þumlung eftir:

 

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!