KVENNABLAÐIÐ

H O L L U S T A: OFNBAKAÐIR epla- og kanelkryddaðir HAFRAMOLAR með DÍSÆTRI bananaviðbót

Hér eru komnir dásamlegir haframolar með kanelkrydduðum eplum og bananakeim. Snilldin ein i nestisbox barnanna og jafnvel með morgunkaffinu; trefjarík máltíð með próteinviðbót og sneisahollt og heimatilbúið góðgæti til að narta í á leið til vinnu. 

Þar sem sjaldnast gefst mikill tími að morgni, er ágætt að hræra í blönduna að kvöldi og baka þegar farið er á fætur, en þannig færðu út ferskan og nýbakaðan morgunverð sem ilmar dásamlega í ofanálag. Sjálf uppskriftin er alveg ósæt, en ágætt er að velja glútenlaus hafragrjón. Þó er bananaviðbótin sæt frá náttúrunnar hendi, en kanelkryddaðir eplabitarnir fara mjög vel með ofnbakaðri mjölblöndunni.

applecinnamonoatmealcup6-1012x1024

Litlu haframúffurnar eru frábærir molar í nestibox barna, á morgunverðarborðið og sérstaklega ef þær eru hafðar til kvöldinu áður en bakaðar að morgni, en einnig er hægt að frysta hluta og afþýða í örbylgjuofni að morgni, ef lítll tími gefst þegar á fætur er farið!

applecinnamonoatmealcups3-1024x768

U P P S K R I F T:

2 bollar haframjöl

1 tsk lyftiduft

⅛ tsk salt

½ tsk kanill

1 bolli mjólk (má vera möndlumjólk, kókosmjólk eða soyamjólk)

1 meðalstórt egg

1 ½ meðalstór banani (maukaður með gaffli)

1 stórt epli; afhýtt, kjarnhreinsað og skorið í smáa bita.

Ef ætlunin er að baka múffurnar strax, skaltu forhita ofninn í 170 gráður, – annars skaltu láta deigið bíða fram að morgni.

Hrærið saman höfrunum, lyftiduftinu, saltinu og kanel í stórri skál. Bætið við mjólkinni, eggjunum og mörðum banana og hrærið þar til allt er vel blandað saman. Hrærið nú eplinu út í blönduna. Blandan má standa í ískáp yfir nótt, eða fara beint í bökunarformin, ef ætunin er að reiða fram strax.

Smyrjið múffuform að innan og fyllið upp öll múffuformin með haframjölsblöndunni – stingið inn í ofninn og bakið við u.þ.b. 170 gráður í 20 – 25 mínútur, eða þar til haframolarnir eru orðnir gullinbrúnir að lit. Stingið inn í ísskáp ef ætlunin er að geyma eða frystið í litlum frystipokum og njótið vel!

*Ath. ef ætlunin er að bera á borð fyrir börn er ágætt að halda salt- og kanelmagni í lágmarki, eins og gefið er upp í uppskrift, en annars má auka magnið örlítið og setja ½ tsk af salti og jafnvel 1 tsk af kanel.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!