KVENNABLAÐIÐ

Sjóðheitur Bieber beraði allt í Jökulsárlóni – „I’ll Show You“

Þá er komið á hreint hvert erindi Bieber til Íslands var; að taka upp myndband við nýútkomna smáskífu sína I’ll Show You, en í stuttu máli sagt mun um eina flennistóra landkynningu að ræða.

Drengurinn sprangar meðal annars um á brókinni í Jökulsárlóni, lætur sig gossa yfir gaddavírsgirðingar og hleypur glaðhlakkanlegur eins og stjórnlaust trippi að vori um rammíslenskar sveitir. Er því varla annars að vænta en að ferðamenn muni streyma til landsins þegar vora tekur, allt til að feta í fótspor geðvonda gullbarkans – sem stormaði af sviði í Osló fyrir fáeinum dögum síðan – en á engu að síður vísan stað í hjörtum heimsbyggðarinnar.

Hér er Bieber … hlaupandi um íslenska náttúru:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!