KVENNABLAÐIÐ

Kendall Jenner (19) í ALVÖRU DANSEINVÍGI fyrir H & M og BALMAIN – Myndband

Kendall Jenner sýnir sjúklega danstakta í auglýsingaherferð Balmain og H & M sem kynnir sérstaka viðhafnarlínu hátískuhússins sem verður fáanleg frá og með 5 nóvember sl. í vefverslunum H & M víða um heim. 

Myndbandið, sem sýnir þær Kendall, Jordan Dunn og Gigi Hadid taka danseinvígi við harðvítuga neðanjarðarlestarfarþega, virðist gerast langt inni í framtíðinni og fer sjálfur Olivier Rousteing, listrænn stjórnandi Balmain tískuhússins með lítið en veigamikið hlutverk, sem stjórnandi heiftugra danseinvíganna.

LOKSINS! – Hér er BALMAIN línan fyrir H & M sem kemur í verslanir þann 5 nóv!

2DE8394F00000578-3295010-image-m-25_1446122981376

Hér má sjá Kendall leiða dansherinn um borð í neðanjarðarlest frá framtíðinni – en fyrir neðan myndbandið sjálft má sjá Behind the Scenes af upptökum á auglýsingaherferðinni … og við bíðum í óþreyju eftir 5 nóvember!

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!