KVENNABLAÐIÐ

D U M B: Silkimjúk og SJÓÐHEIT R & B ballaða frá Kelly Rowland

Kelly Rowland hefur ekki setið auðum höndum frá útgáfu síðustu breiðskífu sinnar, sem út kom fyrir tveimur árum síðan.

Kelly, sem er fyrrum meðlimur Destiny Child og ein besta vinkona sjálfrar Beyoncé hefur á undanförnum tveimur árum gengið í hjónaband með unnusta og umboðsmanni sínum, stúlkan fylgdi eigin móður til grafar eftir langvinn veikindi og fæddi son sinn, Titan, í heiminn. Má af því álykta að lítill tími hafi gefist til tónlistarsköpuanr en þrátt fyrir annir í einkalífinu snýr nú Kelly loks aftur með smáskífuna Dumb.

Sjúklega smart R & B smellur sem hæfir sannarlega sunnudegi eins og þessum, með ljúfu vesturstrandarívafi, en Kelly gefur út sína fimmtu breiðskífu innan tíðar: 

.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!