KVENNABLAÐIÐ

Betri en Beyoncé! – Djazzaður söngvari SÓPAR upp HALO og skákar dívunni!

Postmodern Jukebox brjálæðingarnir sem þekktastir eru fyrir að djassa upp heimsfræga popptónlist og útsetja gegnum YouTube hafa enn eina ferðina farið fram úr eigin hugarflugi og ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur fremur en fyrri daginn.

Þannig stígur nú karlmennið LaVance Colley fram og koverar sjálfa Beyoncé og ferst útgáfan svo vel úr hendi að maðurinn slær eiginlega sjálfri Bey við í ballöðunni Halo. Tónskalinn sem lagið útheimtir er auðvitað nær ómanneskjulegur og því er enn magnaðra að hlusta á manninn klífa alllan tónstigann eins og ekkert hafi í skorist og þá situr bara ein spurning eftir:

LaVance eða Beyoncé? Hvort fer betur með Halo?

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!