KVENNABLAÐIÐ

Skemmtilegt! – Rithöndin kemur upp um karaktereinkenni þín!

Það hvílir skemmtileg dulúð yfir þeirri kúnst að lesa í rithönd fólks. Til eru þeir sem segja undirskriftina eina geta skorið úr um geðheilsu einstaklingsins og svo eru það þeir sem segja rithöndina sjálfa koma upp um persónuleikann.

Kannski listinn sem hér fer að neðan sé yfirborðskenndur og léttur en stúdían er engu að síður skemmtileg og það getur verið gaman að grúska í rithandarfræðum, eða graphology eins og heitið útleggst á enskri tungu. Hér á eftir fara örfáar tilgátur sem gefa vísbendingar um ákveðin persónueinkenni:

Smá og nett rithönd merkir að viðkomandi er samviskusamur og fús til náms, feiminn að eðlisfari, nákvæmur í vinnubrögðum og almennt einbeittur í allri nálgun.

Stórgerð rithönd bendir til að viðkomandi sé úthverfur, félagslyndur og opinn einstaklingur sem kann vel að meta athygli.

Meðalstórir stafir benda til að viðkomandi sé í ágætu jafnvægi og búi yfir aðlögunarhæfni.

Mikið bil á milli stafa og orða (gisin rithönd) merkir að viðkomandi kunni að meta frelsi og eigi erfitt með að sættast á reglustífni. Sá hinn sami kann sennilega ekki vel við sig í fjölmenni og getur upplifað yfirþyrmandi innilokunarkennd í þröngum rýmum.

Þétt stafabil og stutt bil milli orða merkir að viðkomandi eigi erfitt með að vera einsamall og að sá hinn sami sæki nær viðstöðulaust í nánd og félagsskap.

Hringlaga eða sveigðir stafir benda til að viðkomandi sé listrænn og skapandi.

Hvöss rithönd og skarpar línur merkja að viðkomandi er skarpur, vel gefinn, forvitinn að eðlisfari og afar ákveðinn persónuleiki.

Fólk sem tengir stafina saman eru iðulega rökfastir og kerfisbundnir í flestri nálgun.

Ef þú dregur línuna beint yfir stafinn T ertu sennilega með ágætt sjálfstraust, jákvæð/ur að upplagi og metnaðarfullur einstaklingur.

Ef þú dregur línuna þvert gegnum stafinn T ertu að öllum líkindum afslappaður og vingjarnlegur einstaklingur sem líður vel í eigin skinni.

Opnir bókstafir (t.a.m. opið O) merkir yfirleitt að þú hefur ríka tjáningarþörf, ert málglaður og vingjarnlegur, félagslyndur einstaklingur.

Lokaðir bókstafir (t.a.m. lokað O) merkir að þú ert varkár manneskja sem ræðir sjaldan eigin tilfinningar.

Ef punkturinn fyrir ofan I-ið er hátt fyrir ofan býrðu að öllum líkindum yfir ríku ímyndunarafli.

Ef punkturinn fyrir ofan I-ið er til vinstri ertu sennilega að glíma við frestunaráráttu.

Ef punkturinn fyrir ofan I-ið er í fullkominni línu ertu að öllum líkindum með gott auga fyrir smáatriðum, býrð yfir ríkri samkennd og skipulagðri hugsun.

Ef punkturinn fyrir ofan I-ið er hringlaga er barnslega jákvæð hugsjónamanneskja á ferð.

Ef punkturinn fyrir ofan I-ið líkist kommu er viðkomandi sjálfsgagnrýnin/n að upplagi.

Varla er um óskeikul vísindi að ræða, en tilgáturnar eru skemmtilegar engu að síður! Svo … hvað lestu úr eigin rithönd ef taka á mið af listanum hér að ofan?

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!