KVENNABLAÐIÐ

Ofurnæmt fólk – Ert þú ein/n af þeim?

Margir hafa þurft að hlusta á það á lífsleiðinni að þeir ættu nú ekki að vera svona viðkvæmir, séu grenjuskjóður, vælukjóar, væmnir eða hreinlega feimnir og kannski jafnvel félagsskítur.

Ofurnæmni eða Highly Sensitive Personality (HSP) er ekki á allra vitorði og reyndar er ég sjálf bara nýbúin að kynnast þessu orðtaki og fengið útskýringar á sjálfri mér.  Innhverfir og jafnvel einhverjir sem hafa verið ranglega greindir sem Aspergers eða annarsstaðar á einhverfurófinu geta í raun verið ofurnæmir, þar sem mörg einkennin eru ákaflega lík. En það eru margir á einhverfurófinu sem eru einnig HSP. Fólk er jafn misjafnt og við erum mörg.

Auglýsing

Raunin er sú að það eru hreint ekki allir HSP innhverfir þótt vissulega sé stór hluti þeirra það. Enda lái ég þeim það ekki þar sem öll skynfæri eru næmari en ákjósanlegt er ef það á að umgangast annað fólk. Tilfinningarnar eru svo sterkar að stundum geta þær borið fólk ofurliði.

Einnig finna þeir sem eru ofurnæmir, oft fullvel fyrir tilfinningum annarra. Það getur komið sér vel fyrir marga sem lifa af því að hjálpa öðrum, en það getur líka verið yfirþyrmandi þegar skroppið er í Kringluna á háannatíma. Þrengslin, fólk að rekast utan í það, hávaði af margskonar tónlist og tugir ef ekki hundruðir að tala og óhljóðin breytast í öskrandi surg. Margs konar lykt af hverjum og einum sem þar eru inni, ásamt lykt af allskonar mat, sápum, ilmvötnum og snyrtivörum, allar lyktirnar samankomnar verða að slíkum ódaun að það verður nær ógerlegt að vinna úr upplýsingunum sem heilinn fær.

Margir ofurnæmir eiga oft erfitt með að mæta á allskonar uppákomur, finna sér frekar gott horn og fylgjast með fólki heldur enn eiga samskipti við aðra. Það þýðir samt ekki að þeim leiðist. Það þarf ekki endilega að bjarga þeim.

Þar sem þeir eru næmari á umhverfi sitt, taka betur eftir öllum smáatriðum, svipbrigðum, augnráði og pikka jafnvel upp tilfinningar annars fólk, eru upplýsingarnar mun fleiri sem þarf að vinna úr og þar af leiðandi eru þeir lengur að því enn aðrir.

Af sömu ástæðum eru þeir lengur að taka ákvarðanir og þurfa oft mikinn tíma einir með hugsanir sínar og til að endurhlaða batteríin sem klárast oft fyrr enn gott þykir í nútíma samfélagi við annað fólk.

Það er ekki auðvelt að hugsa í friði ef öll skynfærin eru uppfull af nýjum upplýsingum handa heilanum til að vinna úr.

Þar sem næmi þeirra á litum, hljóðum, fegurð og skynfærin öll eru í gangi á sama tíma, hneigjast þeir mikið til lista og margir hverjir ákaflega hæfileikaríkir á þeim sviðum og hefur gengið vel í þeim efnum.

Auglýsing

Rannsóknir á þessu hófust ekki fyrr enn upp úr 1990 þegar Elaine Aron, klínískur sálfræðingur, fór að kanna þetta eftir að hafa uppgötvað það í sálfræðiviðtölum að hún sjálf væri ofurnæm. Ótal rannsóknir hafa verið gerðar síðan þá, greinar gefnar út og bækur, en þekktust er bók Elaine, The Highly Sensitive Person. Hún gaf einnig út heimildarmyndina Sensitive- The Untold Story sem kom út þann 10. september síðastliðinn með viðtölum við söngkonuna og lagasmiðinn Alanis Morrisette, sem hefur oft glímt við erfiða tíma vegna þessa en einnig samið dásamlega tónlist af einmitt sömu ástæðum.

Talið er að um 15-20% alls mannkyns sé ofurnæmt svo þetta er ekki sjaldgæft, sjúkdómur né hægt að flokka þetta sem röskun. Hægt er að lesa sér meira til um HSP á síðum Elaine Aron og jafnvel taka sjálfspróf  og einnig athuga hvort það geti verið að barnið sé gætt þessum eiginleikum á þessum tengli.

Íslendingar eru ekki undanskildir í þessum efnum og hefur verið stofnuð Facebook síða Ofurnæmir Íslendingar, þar sem hægt er að fá upplýsingar um uppákomur og fyrirlestra.

Ofurnæmir Íslendingar á Facebook

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!