KVENNABLAÐIÐ

Lúlú skrifar frá L.A.: „Ég vil þig bara ef þú ert 50 kíló!“

Við sátum saman nokkar stelpur og vorum að ræða málin yfir góðu glasi af rauðu. Umræðuefnið var að sjálfsögðu karlmenn.

Nokkrar af okkur í grúbbunni eru nefnilega ennþá á lausu og hinum finnst við þurfum að gera eitthvað í því . En hvað? Enginn sérlega álitlegur þarna úti. Ég hef ekki séð nema örfáa sem ég hef áhuga á að fara á deit með til að sjá hvernig færi og hvort hann fengi „call back”.

Við vorum búnar að ræða hina og þessa síðu sem hægt er að skrá sig á ef maður er einhleypur, verst bara hvað sumar af þeim eru lélegar, því miður. Þá fórum við að spá í af hverju er ekki opnuð almennileg íslensk stefnumóta síða eins og þeir gera í henni Ameríku. Það gæti verið sniðugt og jafnvel vænt til gróða.

Frekar langt inn í samræðum okkar, segir ein: „Ég hef sögu að segja ykkur, stelpur og hún er ekki falleg. En ég vil að hver dæmi fyrir sig.”

Áður en ég byrja á frásögninni þá vil ég taka það fram að hún er sæt stelpa, hress, alltaf brosandi, hún er í frábærri vinnu og á allt til alls. Hún er mjög sjálfstæð. Og eins og hún vill kalla það, þá er hún aðeins í mýkri kantinum sem hún ber mjög vel og gæti hvorki ég né þú sett nokkuð út á hana . Hún er alltaf flott í tauinu og ber sig glæsilega, enda hávaxin og það er yfir henni einhver tign.

En aftur að frásögninni sem hún sagði okkur þetta kvöld.

Hún hafði fyrir nokkru síðan skráð sig inná stefnumótasíðu hér á landinu. Setti hana upp á fullkominn máta með mynd og allt. Allar upplýsingar voru réttar, hæð, þyngd og þar fram eftir götunum. Viðbrögðin voru lítil. Þau voru samt alltaf einhver, en ekki eins og hún hafði vonað.

Hún var nefnilega orðin leið á einverunni og langaði í vin, góðan vin sem hægt væri að gera allt mögulegt með. En nei, allt kom fyrir ekki. Leitin gekk ekki vel.

Hún fór líka oft út á lífið og úrvalið þar er bara ekki neitt. Það veit ég líka því ég er í sömu sporum með þetta að langa að eignast góðan vin.

Hún, þessi vinkona mín fór að hugsa, hvað er svona slæmt við mig að karlmenn líta ekki við mér tvisvar og mér er bara aldrei boðið út?

Ætli það sé kílóafjöldinn ?

Er ég svona forljót?

Er ég andfúl?

Hvað er málið?

Svo hún ákvað að gerast prakkari og hérna kemur frásögnin af hennar prakkarastriki sem endaði svo með því að særa meira en að vera eitthvað til að flissa yfir.

Eitt kvöldið þegar henni leiddist að þá stofnaði hún „fake” prófíl á þessari stefnumótasíðu. Þar inn setti hún prófíl af rosa gellu, svaka sæt og grönn og hávaxin. Það leið ekki langur tími frá því að hún ýtti á Enter og þar til síðan var opin að póstar fóru að hrynja inn. Á örskömmum tíma var hún komin með 1200 hits og 90 pósta.

Hún átti ekki til orð.

Hún vissi alveg að það gera allir einhverjar kröfur þegar verið er að leita að maka eða góðum vin/vinkonu en þessu átti hún ekki von á. Er útlitsdýrkunin svona rosaleg í okkar heimi?

Það var sama manneskjan bak við báða prófila en bara með sitt hvora kílóatöluna.

Hún sagði okkur að hún hefði fengið rosa sting í hjartað yfir þessu. Hún hafði búið erlendis í nokkur ár og þá var þetta aldrei neitt sem hún þurfti að spá í. Feit eða mjó. Skiptir ekki máli þar. Greinilega ekki eins grunnhyggnir þeir sem búa annars staðar en á Íslandi, sem allir vilja flotta sig sem Elítuna.

Það sem sagt má ekki vera aðeins yfir kjörþyngd þá er maður út.  Hvernig má það vera að gullfalleg ung kona nái sér ekki í karlmann af því hún er ekki 50 kg og með gáfur á við sjimpansa?

Erum við virkilega svona „SHALLOW” getur það verið ?

Skiptir ekki innri maður líka einhverju máli? Eða er karlmönnum sama þó þeir geti ekki átt í samræðum við þær sem þeir eru að hitta, deita eða enda með að giftast? Bara af því hún var með rétta kílóatölu, þá er það allt í lagi.

„IQ“ skiptir greinilega engu máli.

„I look good“ er greinilega málið.

Það hefur verið sagt og ég ætla að segja það aftur:

KARLMENN HRÆÐAST SJÁLFSTÆÐAR, STERKAR KONUR! 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!