KVENNABLAÐIÐ

Þvílíkt REMIX! – Ed Sheeran og Beyoncé taka órafmagnaða útgáfu af Drunk In Love!

Beyoncé aðdáendur! Takið gleði ykkar, því býflugnadrottningin gerði hlé á annars dásamlegu sumarfríi til að troða upp með sjálfum Ed Sheeran á Global Citizen Festival! Magnað myndband náðist af tvíflutningi stjarnanna sem má sjá hér að neðan, en fyrir þá sem ekki vita – er tónlistarhátíðin haldin ár hvert í þeim tilgangi að vekja athygli á misrétti og sárrar fátæktar í heiminum.

Ed Sheeran var vopnaður voldugum kassagítar og saman tók þetta ólíklega teymi eitt af vinsælli lögum Beyoncé, Drunk in Love og tvírödduðu í órafmagnaðri útgáfu sem gæddi melódíuna gullfallegum blæ.

Gullfalleg útgáfa af seiðandi laglínu – og magnaður dúett!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!