KVENNABLAÐIÐ

Rauðlaukssulta – alveg rosalega góð

Föðursystir mín hún Ásdís gaf mér krukku af þessari heimatilbúnu rauðlaukssultu og það var slegist um krukkuna mætti eiginlega segja.

Auglýsing

Alveg meiriháttar góð með flest öllum mat.

Hráefni:

• 4 rauðlaukar, saxaðir
• 2msk smjör
• 2msk rauðvínsedik
• 2msk rifsberjahlaup
• 1msk maple síróp
• 100 gr sykur = hálfur bolli
• 1-2 msk vatn
• smá salt, eftir smekk

Leiðbeiningar:

Bræða smjörið, laukur útá, sykur, síróp, sulta og edik og vatn. Þetta er soðið þar til það þykknar. Alls ekki brúna laukinn. Svona er þetta sirka, svo bara prófarðu þig áfram til að finna rétta bragðið.

Uppskriftin var áttfölduð og gefur þá 17 krukkur – 250 ml í krukku.

Hráefni:

8x 4 rauðlaukar, saxaðir = 32
8x 2msk smjör = 16 (hálf dós)
8x 2msk rauðvínsedik = 16 (240 ml)
8x 2msk rifsberjahlaup = 16 (ath fór 1 krukka = 400 gr af gammel dansk hlaupi)
8x 1msk maple síróp = 8 (notaði bláberja sýróp)
8x 100 gr sykur = 800 gr (ath 100 g er = hálfur bolli)
8x 1-2 msk vatn = 8 msk
• smá salt, eftir smekk

Leiðbeiningar (þær sömu og áðan):

Bræða smjörið, laukur útá, sykur, síróp, sulta og edik og vatn. Þetta er soðið þar til það þykknar. Alls ekki brúna laukinn. Svona er þetta sirka, svo bara prófar þú þig bara aðeins áfram ef þér finnst bragðið ekki nógu gott.

Njótið~

Auglýsing

Þessi uppskrift er fengin af vef Heilsutorg sem er íslenskur heilsu- og lífsstílsvefur, en fleiri uppskriftir af vef Heilsutorg má skoða HÉR þar sem heilnæm hráefni eru höfð í fyrirrúmi.

heilsutorg

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!