KVENNABLAÐIÐ

„Eðlilega“ Barbie fer líka á blæðingar og henni fylgja dömubindi og innlegg líka!

Barbie fer líka á blæðingar; tvífari hennar Lammily hefur í það minnsta á klæðum og kemur útbúin sérstökum fylgibúnaði sem ber nafnið Period Party.

Það sem meira er, hún er að gera allt vitlaust og það á besta veg sem hægt er að túlka orðin þau. Áætlað er að konur eyði að meðtali sex árum af ævi sinni, allt frá 12 ára til 51 árs aldur á mánaðarlegum blæðingum – en þessa tölfræði má finna á vefsíðu Lammily.

„Þrátt fyrir að mánaðarlegar blæðingar fari með stórt hlutverk í lífi kvenna, er þessi náttúrulega og heilbrigða hringrás tíðahringsins sveipuð dulúð og jafnvel skömm. Við þurfum að læra að ræða mánaðarlegar blæðingar kvenna og byggja upp jákvæð viðhorf til tíðahringsins.“

Period Party pakkinn sem fylgir með Lammily dúkkunni inniheldur:

Upplýsingabækling (á ensku)

Nærbuxur fyrir Lammily dúkkuna

18 endurnýtanleg dömubindi og innilegg í nærbuxurnar

Dagatal og örsmáa límmiða – sem eru ætlaðir til að merkja tíðahring Lammily

Stórsniðugt uppátæki sem án efa á eftir að koma mörgum ungum stúlkum að notum!