KVENNABLAÐIÐ

I Am Size Sexy: Glæsileg Plus Size undirfatalína Ashley Graham á tískuviku #NYFW

Pluz Size fyrirsætan Ashley Graham kom, sá og sigraði á pöllum tískuviku í New York nú í vikunni, þar sem hún fór fyrir föngulegum hópi gullfallegra kvenna með mjúkar línur sem allar kynntu undirfatalínu Ashley og Addition Elle.

Bogadregnar línur, mjúk læri og miklar mjaðmir áttu pallana; bústnir barmar og glæsilegar konur í gullfallegum undirfatnaði Ashley, sem er sjálf í stærð 16 og hratt af stað samfélagsmiðlaherferðinni #IAmSizeSexy fyrir skemmstu.

 

Þess má geta að Ashley varð fyrsta Plus Size fyrirsætan til að prýða forsíðu Sports Illustrated og hefur vakið mikla athygli fyrir jákvæða framgöngu sína í hátískuheiminum, en fyrirsætan og fatahönnuðurinn hefur einnig verið óþreytandi í baráttu sinni fyrir jákvæðari líkamsvitund kvenna.

Glæsileg stúlka og gullfalleg lína – hér má sjá viðtal POPSUGAR við Ashley að tjaldabaki:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!