KVENNABLAÐIÐ

NYFW: Þrýstin brjóst, ávöl læri og mikilfenglegar mjaðmir ryðja sér rúms á tískuviku

Bogadregna byltingin; fáklæddar Plus Size fyrirsætur með þrýstin brjóst, mjúk læri og mikilfenglegar mjaðmir munu loks ganga pallana á yfirvofandi tískuviku í New York sem hefst síðar í þessari viku.

Plus Size umbótastefnan fær þannig loks uppreisn æru þegar líða tekur á sjálfa tískuvikuna, en þær raddir sem hafa ómað hæst undanfarin misseri og undirstrika mikilvægi jafnræðis í tískuheiminum hafa náð eyrum undirfatafyrirtækisins Addition ELLE sem framleiðir hágæða undirfatnað fyrir konur í yfirstærð. Tískuhúsið hratt af stað samskiptamiðlaherferð fyrir skemmstu undir yfirskriftinni #IAmSizeSexy og hefur uppskorið lof að launum. 

Ashley-Graham-per-il-sito-di-moda-AdditionElle-credits-to-@theashleygraham

Undirfataframleiðandinn, með Plus Size fyrirsætuna Ashley Graham í fararbroddi, mun kynna tælandi og kvenlega undirfatalínu á sjálfri tískuvikunni fyrir konur í yfirstærð þann 15 september nk. og bíða ófáir í ofvæni. Undirfatasýningin mun marka ákveðin tímamót í kröfuhörðum heimi hátískunnar þar sem fjölbreytilegt vaxtarlag kvenna þykir oft skrumskælt í nafni óraunhæfrar fullkomnunar og beinast því margra augu að haust og hátíðarlínu Addition Elle nú í í september. 

lanebryantimnoangelashleygraham

Tælandi satínlínan ber heitið Black Orchid Collection og verður m.a. fáanleg í verslun Lord and Taylor á Fifth Avenue í New York frá og með 16 september nk. eða í beinu framhaldi af frumsýningunni í New York þann 15 september. Með öðrum orðum; tælandi undirfatalína í hæsta gæðaflokki fyrir konur í yfirstærð, blúndubrjóstahaldarar sem fara vel undir jólakjólnum í ár, eru á leið í verslanir.

screenshot-fashionresourcenetwork.com 2015-09-07 18-12-55

Margir vilja meina að áleitnum bænum kvenna víða um hinn vestræna heim hafi með þessu verið svarað; ákalli sem endurómar orðunum:

„Af hverju geta konur með bogadregnar línur ekki gengið að sama úrvali tískuvara og þær kynsystur þeirra sem eru í og rétt undir kjörþyngd? Hvers vegna taka öll tískusnið og stærðir mið af grönnum stúlkum, en ekki konum með breiðar mjaðmir og bústinn barm?“

Þessum og fleiri spurningum svarar Roslyn Griner, sem fer fyrir Addition ELLE, í beinskeyttu viðtali við tískuritstjórinn Chris Collie á vef Fashion Week New York og skýtur Roslyn þar föstum skotum að Victoria Secret, en sem frægt er neitar undirfataframleiðandinn með öllu að framleiða línu fyrir konur í yfirstærð, sem aftur hefur þótt ærið tilefni til opinberra mótmæla, undirskriftarlista og samfélagsmiðlaherferða undanfarin misseri.

Hér má sjá Ashley Graham kynna vorlínu Addition Elle fyrr á þessu ári og þá er bara að bíða þess að haust- og hátíðarlínan verði afhjúpuð á tískuviku NY að þann 15 september:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!