KVENNABLAÐIÐ

S V A L A D R Y K K U R: Jarðarberja, myntu, gúrku- og limevatn í drykkjarbrúsann!

Svo þú hjólar í vinnuna? Sækir þorstinn að eftir morgunhlaupin? Alltaf með vatn í brúsa? Þurfa börnin jafnvel að taka með sér vatnsbrúsa í skólann? Viltu sneiða hjá rándýrri mjólkuráskrift í grunnskólanum? Því ekki að laga þitt eigið ávaxtavatn og draga fram að morgni? Stútfullt af næringarefnum, gersneytt aukaefnum og frískandi!

IMG_8984

U P P S K R I F T:

1 bolli niðurskorin (mega vera maukuð) jarðarber

1 bolli smátt skorin gúrka

2 lime ávextir – niðurskornir

¼ bolli smátt skorin, fersk mynta

1 líter vatn

IMG_8995

 L E I Ð B E I N I N G A R:

Byrjið á því að taka fram ágæta könnu sem rúmar ca. 1.5 lítra af vökva.

Setjið jarðarberin, agúrkurnar, limesneiðarnar og myntulaufin í botninn á könnunni og ísmola ofan á allt.

Fyllið upp með köldu vatni.

Setjið inn í ísskáp og látið standa yfir nótt.

IMG_9007

Takið fram að morgni, hellið í glas (eða á drykkjarbrúsa) og njótið!

@backtotheroots

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!