KVENNABLAÐIÐ

Ástarstjörnuspá fyrir vikuna 11. – 17. september

Nú má alveg búast við að það fari að hitna í kolunum. Þetta verður stormasöm vika og erfið fyrir marga. Þá er um að gera að reyna fnna rómantíkina innra með þér; kveiktu á kertum, settu ljúfa tónlist á og njóttu þess að hlusta á vindinn.

hrutur

Hrúturinn

Það er orðið svolítið síðan að einhver fékk þína óskiptu athygli en það á eftir að breytast. Þú verður samt að hafa aðeins fyrir þessu. Þú þarft að byrja á sjálfri þér, hugsa um þig og líta vel út. Þá áttu möguleika á að einhver heilli þig og/eða þú finnir ástríðuna í sambandinu á ný.

naut

Nautið

Þessa vikuna muntu fá stóra tækifærið sem þú hefur beðið eftir. Þú hefur átt erfitt undanfarið og það hefur farið í skapið á þér. Nú mun þetta breytast og þú verður mun skemmtilegri. Bjóddu honum á stefnumót ef þið eruð ekki í föstu sambandi en ástandið batnar til muna á heimilinu ef þú ert gift.

tvíburi

Tvíburinn

Að velja á milli frelsis og skuldbindingar er eins og að þurfa velja milli tveggja elskhuga. Annar hefur eitthvað sem hinn hefur ekki og öfugt. Kæri Tvíburi þú getur ekki fengið bæði. Láttu hann vita að þú þarft þitt næði og tíma fyrir sjálfa þig svo þú fáir ekki köfnunartilfinningu í sambandinu.

krabbi

Krabbinn

Þú átt eitthvað erfitt með að tjá þig við hitt kynið þessa vikuna. Þér finnst hann þrjóskur og sífellt í vörn. Reyndu að láta hann sjá málin frá þínu sjónarhorni. En mundu samt að þú getur ekki neytt hann til að elska þig og ef hann er ekki að sýna þér ást og athygli eins og þú átt skilið þá er spurning að staldra við og meta stöðuna.

Ljón

Ljónið

Konur í ljónsmerkinu kunna að hugsa um sína menn. Þær þekkja þarfir þeirra en þetta krefst vinnu. Þessa vikuna þarftu að skoða hvað þú ert að segja við hann og skilaboðin sem þú sendir út með líkamstjáningu. Hann reynir á þolrifin núna og þú þarft að anda djúpt inn og út. Ef þú meikar þessa viku þá mun hann verðlauna þig á ævintýralegan hátt.

meyja

Meyjan

Þú þarft aðeins að slaka á stjórnunarsemi þinni núna. Þú getur ekki klónað þig og allir hugsi eins og þú. Leyfðu honum að vera hann sjálfur. Stundum ertu sammála og stundum ekki og svoleiðis er það bara. Finndu kæruleysið í þér og leyfðu bara augnablikinu að standa eins og það er. Njóttu dagsins.

vogin

Vogin

Þú þarft að opna þig og segja hreint út hvað þú vilt. Mundu að hlusta líka og sjá hvað það er sem er að trufla þann sem þú elskar. Hann hefur verið að hlífa þér undanfarið og það hefur verið dökkt ský yfir ykkur sem þarf að hreinsa burt. Notaðu kvöldin til að tala opinskátt og hreinsa andrúmsloftið.

sporðdreki

Sporðdrekinn

Það er stundum erfitt að vera Sporðdreki. Þú ert með pínu snert af ofsóknarbrjálæði og slæm af því þessa vikuna. Þú getur ekki verið heima að ímynda þér allt það versta. Að hann sé ekki hrifinn af þér, að hann fíli vinkonu þína betur, að hann ætli að reyna við nýju stelpuna í vinnunni hans í partýinu á föstudaginn o.s.frv. Vertu sjálfsörugg og sexí.

bogmaður

Bogmaðurinn

Það hentar engum betur að vera í fjarsambandi en Bogmanninum. Hvort sem það er að elska útlending eða Íslending sem dvelur erlendis í vinnu eða námi þá er það málið. Þessa vikuna ætti Bogmaðurinn að skella sér erlendis. Hann verður að komast út reglulega og þá mun rómantíkin blómstra.

steingeit

Steingeitin

Ekki besta vikan fyrir Steingeitina en hún heldur coolinu þrátt fyrir að henni líði eins og hún sé að missa tökin. Hræðslan er alveg að drepa þig. Þú heldur að hann sé að fara að hætta með þér og þér finnst að þú ættir þá frekar að hætta fyrst með honum. Róaðu þig og hættu með þennan barnaskap. Öll sambönd ganga í gegnum hæðir og lægðir.

vatnsberi

Vatnsberinn
Þér finnst eins og elskhugi þinn sé að fjarlægjast þig og hann sé ekki til staðar fyrir þig. Þá verður þú kæri Vatnsberi að gera eitthvað í málinu. Það er ekkert rangt við það að biðja um meiri ást og athygli. Það mun koma þér skemmtilega á óvart og þið munuð eiga rómantískar stundir innan og utan svefnherbergisins.

fiskar

Fiskarnir

Sem Fiskur þá áttu það til að synda í kringum skuldbindingu. Það munu þó skella á þig þessa vikuna, tilfinningar sem þú getur ekki forðast lengur. Það er annað hvort eða núna. Engar afsakanir. Ef þú vilt hann þá verður þú að vera tilbúin í stórar breytingar sem munu hafa áhrif á allt þitt líf. Ef ekki þá skaltu vera tilbúin til að sleppa.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!