KVENNABLAÐIÐ

Wildest Dreams – Taylor Swift með kastaníubrúna lokka í villtum draumi

Ef ske kynni að þú hafir ekki fylgst með tónlistarfréttum undanfarna daga; Taylor Swift sé í sérstöku uppáhaldi og drunga hversdagsins ætli alveg um þverbak að keyra … getur þú tekið gleði þína að nýju.

Taylor frumsýndi myndbandið við smáskífuna sína Wildest Dreams af 1989 á MTV Music Video Awards sl. sunnudag og svíkur engan; en hér má sjá stjörnuna stórtæku með kastaníudökka lokka, flögrandi um lendur Afríku meðan hún blótar upplognum mótleikara sínum og elskhuga við tökur á rómantískri nýlendumynd. Allt í anda gömlu Hollywood og floginna vonbiðla, sem svikulir reynast.

Hér fer bitur Taylor Swift í sínum villtustu draumum:  

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!