KVENNABLAÐIÐ

Undrabarnið Heaven King snýr aftur – tekur götur New York með trompi!

Heaven litla er snúin aftur; fimm ára gömul hnáta sem er með danstaktana alveg á hreinu! Þessi litla stúlka hefur þegar troðið uppi hjá Ellen DeGeneres og það ekki einu sinni heldur tvisvar, en móðir litlu stúlkunnar heitir Tianne og er atvinnudansari sjálf.

Þær mæðgur halda úti YouTube rás þar sem þær birta reglulega ný dansmyndbönd og eru með Instagram aðgang þar sem fylgjast má með dansævintýrum Heaven litlu og Tianne, móður hennar. Hér má aftur á móti sjá nýjasta sprell þeirra mæðgna, ásamt dansklani Heaven litlu, taka New York með trompi.

Sú stutta á framtíðina fyrir sér á dansgólfinu!  

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!