KVENNABLAÐIÐ

Kanye West mun bjóða sig fram til Bandaríkjaforseta: „Ég rúllaði eina jónu rétt áðan“

Kanye West heldur áfram að slá vopnin úr höndum heimspressunnar, en rappmógúllinn steig á svið VMA MTV verðlaunaafhendingarinnar sem fram fór í gærkvöldi, til að taka á móti Michael Jackson Video Vanguard verðlaununum, sem hann hlaut fyrir framúrskarandi tónlistarferil.

Kanye, sem tók við verðlaununum úr höndum sjálfrar Taylor Swift, greip hljóðnemann að lokinni sjálfri afhendingunni og hélt 15 mínútna langa ræðu þar sem hann meðal annars viðurkenndi að hafa reykt mariuana áður en hann steig á svið og sagði tónlistarbransann gera illa við listafólk, dásamaði kannabisreykingar og kastaði svo sprengjunni:

Hann hefur ákveðið að bjóða sig fram til Bandaríkjaforseta árið 2020.

gallery-1440989416-gettyimages-486009466

Þá lofaði Kanye sjálfa Taylor Swift í hástert og þakkaði henni fyrir almennt örlæti, en flestir muna þegar rapparinn rauk upp á svið við sama tækifæri árið 2009 og sagði Taylor, sem þá hlaut verðlaun fyrir besta myndbandið, ekki jafnast á við Beyoncé, sem væri langtum betri listamaður.

Ég hugsa oft um daginn sem við hittumst, Taylor. Ég rifja það upp þegar ég fer og versla í matinn með dóttur minni og við erum að spjalla saman um ávaxasafa og einhver segir – þú ert ekkert svo slæmur!

landscape-1440990220-gettyimages-486013668

Þá viðurkenndi rapparinn einnig að hafa sýnt öðrum listamönnum óvirðingu, en rapparinn er alræmdur fyrir stanslausar truflanir á verðalunaafhendingum og hefur þannig ósjaldan rokið upp á svið til þess eins að gera lítið úr öðrum sem hlotið hafa viðurkenningar. Bar þar hæst vangaveltur hans af fyrrgreindum árekstri hans og Taylor árið 2009:

Ég veit það ekki. Hvað ef ég gæti endurtekið leikinn? Hefði ég átt að vera í leðurskyrtu? Eða átti ég að sturta í mig hálfri flösku af Hennessy viskí og gefa áhorfendum restina í flöskunni?

Að lokum viðurkenndi rapparinn að vera undir áhrifum vímuefna eins og fram kemur hér að ofan og sagði einfaldlega:

Já, ég rúllaði eina jónu áður en ég steig á svið. Bara til að slaka aðeins á taugunum.

 Hér má sjá brot úr undarlegri ræðu Kanye á sviði VMA MTV verðlaunanna í gærkvöldi: 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!