KVENNABLAÐIÐ

Beikonlagað Bourbon á ís með appelsínutvisti – Kokteill

Sá beikonlagaði er ekki fyrir þá veiklyndu. Hér er á ferð kornviskíkokteill eins og þeir gerast bestir í reyklögðum heimi vindlareykingamanna og viskíunnenda, en kokteillinn sjálfur á uppruna sinn að rekja til viskíbúllu í New York sem komin er til ára sinna. Enda fer einungis alvöru Suðurríkja-Bourbon á borð við Jim Beam í hann þennan. Hugsið ykkur bara.

0cf56a84bdaed9d8a2dd742f5982f4a9

Beikonfituna þarf að veiða ofan af kornviskíinu áður en víninu er hellt í fallega karöflu. Undirbúningurinn sjálfur er þolinmæðisvinna, eða um hálfur sólarhringur. En biðin er fyllilega hverrar mínútu virði, því að sögn þeirra sem til þekkja – er beikonlagað kornviskí með ísmolum hreinasti unaður.

H r á e f n i:

700 ml vandað kornviskí (t.d. Jim Beam Bourbon / Old Virginia Bourbon) 

 3 – 4 sneiðar vænt beikon 

Angostura bitter (fæst í ÁTVR) 

Fínrifinn appelsínubörkur

Kornsýróp (Maple Syrup)

Ísmolar 

screenshot-i.huffpost.com 2015-08-28 16-52-26

B e i k o n l a g a ð  – k o r n v i s k í:

#1 – Steikið beikonið og síið beikonbráðina frá: 

Þurrsteikið 3 – 4 vænar sneiðar af beikoni á pönnu og fleytið bráðina af, eða því sem nemur tæpum ½ dl.af bráðinni beikonfitu.

#2 – Færið kornviskíið í vatnskönnu: 

Hellið kornviskíinu (Bourbon Whiskey) í ágæta vatnskönnu sem er búin loki og hellið beikonfitunni yfir kornviskíið. Látið standa við stofuhita í u.þ.b. 8 klst. eða jafnvel yfir nótt.

#3 – Kælið og leyfið beikonbráðinni að storkna: 

Látið viskíblönduna standa inni í ísskáp í u.þ.b. 1 klst. eftir umræddan lögunartíma þar til fitan storknar og rís.

#4 – Fleytið mestu fitunni af og sigtið beikonviskíblönduna: 

Ágætt getur verið að notast við fíngert sigti eða jafnvel taugrisju, þegar beikonfitan er síuð frá viskíinu sjálfu og beikon-löguðu viskíinu er hellt á fallega karöflu.

Beikonlagaður kornviskíkokteill á ís með appelsínutvisti:

6 cl (tvöfaldur) beikonlagað kornviskí

1 ½ tsk kornsýróp (Maple syrup)

2 tsk Angostura bitter (fæst í ÁTVR)

Fínrifinn appelsínubörkur til skreytingar

Borið fram á ís

11417239_917735728305931_311614050_n

SKÁL Í BOÐINU!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!