KVENNABLAÐIÐ

Sumarlegur partýkokkteill!

Martha Stewart klikkar ekki og þessi sumarlegi kokkteill er þess virði að prófa hann þó það taki smá fyrirhöfn að búa hann til. Þessi uppskrift miðast við 8 drykki.

Þú þarft að hafa við hendina:

1 1/2 bolla af góðum vodka,

1 stór gúrka; 1/2 afhýdd og skorin gróft. Geymið hinn helminginn.

1 límónu skorna í 8 báta.

2 L af sódavatni.

Engifer sýróp en svona býrðu það til:

1 bolli vatn

1 bolli sykur

4 cm langur engiferbútur sem þú afhýðir og skerð í þunnar sneiðar.

Sjóðið saman sykur og vatn og bætið engiferinu við þegar sykurinn er bráðnaður. Látið malla góða stund og takið af hellunni. Látið standa í 30 mín og sigtið síðan sýrópið í krukku. Sýrópið geymist í mánuð í kæli.

pouring-syrup

Svona býrðu kokkteilinn til!

  1. Hellið vodka í stóra hreina krukku  og bætið söxuðu gúrkunni við.  Kælið í ísskáp í klukkutíma. Sigtið gúrkubitana frá og kælið að nýju þar til þú ætlar að búa kokkteilinn til. Geymist í kæli í tvo daga.

  2. Takið hinn helminn gúrkunnar og skerið langsum þunnar, langar  sneiðar með grænmetisflysjara eða ostaskera

  3. Takið 8 drykkjarglös eða krukkur og fyllið með klaka.  Setjið þrjár gúrkusneiðar og þrjár matskeiðar af vodkablöndunni í hvert glas. Kreistið safa úr límónubát í hvert glas og setjið hann svo í glasið. Fyllið með sódavatni og hrærið í 1-2 teskeiðum af engifer-sýrópinu.

Njótið helgarinnar!

giphy

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!