KVENNABLAÐIÐ

Verbúðin tilnefnd til evrópsku ljósvakaverðlaunanna

Þáttaröðin Verbúðin er tilnefnd til evrópsku ljósvakaverðlaunanna Prix Europa í flokki leikins sjónvarpsefnis.
Ófærð vann þessi sömu verðlaun 2016. Áður hafa sjónvarpsþáttaraðirnar Ráðherrann, Flateyjargátan og Fangar verið tilnefnd til verðlaunanna í flokki leikins sjónvarpsefnis.

Sagan í Verbúðinni er sögð út frá venjulega fólku sem tók af skarið og komst í álnir. Mörgum ímyndum úr íslenskri poppmenningu níunda áratugarins bregður fyrir í þáttunum, til að mynda verður atriði úr spjallþætti Hemma Gunn sett á svið sem mun örugglega hræra í þeim sem eru hallir undir fortíðarþrá

Verðlaunin verða afhent í Berlín í Þýskalandi í október.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!