KVENNABLAÐIÐ

Franskar crêpes með eplafyllingu

Ég elska fátt meira en góða pönnuköku. Það fer allt eftir því í hvernig skapi ég er, hvort ég geri amerískar pönnukökur, franskar og fylltar eða gömlu, góðu íslensku pönnukökurnar.

Höfundur er Lilja Katrín Gunnarsdóttir og kemur uppskriftin frá Blaka.is

Í bókinni minni, Minn sykursæti lífsstíll, ákvað ég hreinlega að bjóða upp á uppskriftir að öllum þremur og hér fylgir uppskriftin að frönsku „crêpes“ pönnukökunum svokölluðu.

Hægt er að fylla „crêpes“ með nánast hverju sem er, en í þessari uppskrift fer ég yfir frekar skothelda eplafyllingu sem bráðnar í munni.

Myndina af þessu lostæti tók hin yndislega Sunna Gautadóttir sem nær að gera allar matarmyndir girnilega og fallegar.

Gleðilegan pönnukökubakstur!

 

Hráefni

Crêpes
2 bollar mjólk
1 1/3bolli hveiti
1 egg
1msk olía
1/2tsk lyftiduft
2msk sykur
Eplafylling
3 stór epli, afhýdd og skorin í litla bita
3msk púðursykur
1tsk  kanill

Leiðbeiningar

Crêpes
  1. Blandið öllum hráefnum saman og þeytið þar til blandan er kekkjalaus.
  2. Setjið pönnu á hellu við háan hita og spreyið bakstursspreyi á hana. Þegar pannan er orðin mjög heit hellið þið smá af deiginu á hana og dreifið því jafnt yfir pönnuna. Deigið á bara rétt að hylja pönnuna því pönnukökurnar eiga að vera mjög þunnar.
  3. Steikið kökurnar í 1-3 mínútur á annarri hliðinni og um mínútu á hinni hliðinni.
Eplafylling
  1. Setjið öll hráefni í skál og blandið vel saman. Leyfið þessu að standa í 20 mínútur. Það er gott að undirbúa fyllinguna og steikja síðan pönnukökurnar á meðan hún stendur.
  2. Setjið blönduna á pönnu og hitið yfir meðalhita þar til eplin verða mjúk, eða í 3-5 mínútur.
  3. Setjið eplafyllingu í miðjuna á hverri pönnuköku og lokið kökunum. Þessar eru miklu betri ef bæði pönnukaka og fylling er heit þegar þær eru bornar fram.

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!