KVENNABLAÐIÐ

Ofursumarlegur ostakökuís – Er eitthvað betra?

Auðvitað þurfti ég að umbreyta mínum eftirlætisrétti, ostakökunni, í ís og útkoman er vægast sagt stórfengleg! Þessi ís er léttur og ferskur en ofboðslega bragðsterkur og djúsí. Ég þakka rjómaostinum fyrir það!

Höfundur er Lilja Katrín Gunnarsdóttir og kemur uppskriftin frá Blaka.is

 

Hér er um að ræða hinn fullkomna eftirrétt í sumar sem bætir lífið manns töluvert þegar að sólin skín.

Þessa uppskrift er að finna í bókinni minni, Minn sykursæti lífsstíll, en uppskriftin er einstaklega einföld, inniheldur fá hráefni og mettir ansi marga svanga maga.

Ostakaka + ís + bláber = Skotheld blanda!


Bláberjablanda
Leiðbeiningar
Ís
  1. Byrjið á því að taka til ílangt brauðform til að skella ísnum í. Þeytið svo rjómann og setjið til hliðar.
  2. Þeytið rjómaost, dósamjólk og börk vel saman í skál og bætið síðan rjómanum út í. Blandið honum varlega saman við með sleif eða sleikju.
  3. Skellið blöndunni í formið og fyrstið í 4 klukkustundir.
Bláberjablanda
  1. Setjið bláber, vanillusykur og 3 matskeiðar vatn í pott og eldið yfir meðalhita í 5-7 mínútur. Hér viljum við að bláberin springi og hægt er að hjálpa þeim með því að ýta á þau reglulega með viðarsleif.
  2. Blandið síðan maíssterkju og vatni saman í lítilli skál og bætið út í bláberjablönduna eftir þessar 5-7 mínútur. Sjóðið í eina mínútu til viðbótar.
  3. Takið pottinn af hellunni, hellið blöndunni í litla skál og kælið í ísskáp þar til ísinn er búinn að vera í frysti í 4 klukkustundir.
  4. Takið ísinn úr frystinum og dreifið bláberjablöndunni ofan á hann. Gott er að taka gaffall og dreifa blöndunni með honum til að hún nái aðeins undir yfirborðið. Setjið ísinn aftur í frysti yfir nótt.
  5. Ég mæli svo með því að bera þennan unaðslega ís fram með ferskum bláberjum og hafrakexmylsnu. Það er dúndur!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!