KVENNABLAÐIÐ

Edda Falak birtir samskipti Frosta við kærustuna sem hann beitti ofbeldi: „Ég var svo hrædd“

Fjármálafræðingurinn og þáttastjórnandi hlaðvarpsins Eigin Konur, Edda Falak, hefur birt samskipti Frosta Logasonar fjölmiðlamanns við fyrrverandi kærustu sína, Eddu Pétursdóttur. Það gerir hún á Twitter þar sem hún segist afar stolt af nöfnu sinni á stíga fram:

„Á nánast hverjum einasta degi frá Júní 2012 – Apríl 2013 kom eittthvað þessu líkt. Hún var 20 ára, hann var 35 ára og lögreglan gat ekki hjálpað henni. 10 árum seinna skilar hún skömminni og ég gæti ekki verið stoltari af henni,“ segir Edda Falak.

Frosti er kominn í leyfi frá störfum sínum hjá Sýn. Leyfið er ótímabundið og óljóst hvenær eða hvort hann snýr þar aftur til starfa. Þórhallur Gunnarsson segir jafnframt óljóst hvort uppsögn Frosta sé yfirvofandi. Sá síðastnefndi steig fram og viðurkennd ofbeldi í garð fyrrverandi kærustu sinni og óskaði Frosti sjálfur eftir því að fara í leyfi.

Sjá einnig: Frosti fjölmiðlastjarna játar ofbeldi gegn Eddu: „Ég biðst innilegrar afsökunar”

Frosti játaði á sig ofbeldishegðun gegn fyrrverandi kærustu sinni, Eddu Pétursdóttur. Þá birti hann yfirlýsingu á Facebook þar sem hann baðst innilegrar afsökunar og segist ekki hafa verið á góðum stað í lífinu þegar ofbeldið átti sér stað. Frosti segist jafnframt hafa leitað sér hjálpar.

„Ég var svo hrædd við að segja frá því að á sínum tíma var gert lítið úr þessu og hann þar að auki frekar þekktur maður,” segir Edda sem óttaðist Frosta í tæpan áratug.

Sjá einnig: Kærasti Eddu hótaði að birta nektarmyndböndin: „Ég var svo hrædd við að segja frá því að á sínum tíma var gert lítið úr þessu og hann þar að auki frekar þekktur maður”

Edda bjó við stöðugan ótta í nærri áratug vegna ítrekaðra hótana um að kynferðislegum myndböndum af henni yrði dreift. Myndböndin tók Frosti upp án hennar vitundar en þau voru í fjarsambandi og hittust reglulega á Skype. „Við gerðum ýmislegt á Skype. Það sem ég vissi ekki var að hann tók upp kynferðisleg myndbönd af mér og geymdi þau,“ segir hún.

Frosti hefur sagst hafa verið miður sín vegna sambandsslitana við Eddu. Hér fyrir neðan má sjá brot af samskiptunum eftir slitin en skjáskotin birti Edda Falak á Twitter-reikningi sínum:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!