KVENNABLAÐIÐ

Einn með fyrsta vinning!

Stálheppinn miðahafi var einn með 1. vinning í Lottó útdrætti gærkvöldsins og hlýtur hann rúmlega 9 milljónir króna. Miðinn var keyptur á heimasíðunni Lotto.is. Tveir miðahafar skiptu bónusvinningnum á milli sín og fær hvor þeirra rúmlega 198 þúsund krónur í sinn hlut. Annar miðanna var keyptur í Kvikk, Vesturlandsvegi í Reykjavík og hinn miðinn var í áskrift.

Fimm miðahafar voru með 2. vinning í Jóker og fá 100 þúsund krónur hver. Einn miði var keyptur í Fjarðarkaup í Hafnarfirði, einn miði var keyptur á heimasíðunni Lotto.is, einn miði var keyptur í Lottó appinu og tveir miðar voru í áskrift.

Heildarfjöldi vinningshafa var 5.585.

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!