KVENNABLAÐIÐ

Einn með fyrsta vinning og hlýtur rúmar 9,7 milljónir króna

Heppinn spilari var einn með 1. vinning í Lottó útdrætti vikunnar og hlýtur hann rúmlega 9,7 milljónir króna. Miðinn góði var keyptur í Lottó appinu. Sex skiptu með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra 70.980 kr. í sinn hlut. Fjórir miðanna eru í áskrift, einn var keyptur á lotto.is og einn miðinn var keyptur í Prinsinum, Hraunbæ 121 í Reykjavík.

Í Jókernum var einn áskrifandi með 1. vinning og fær hann 2 milljónir króna í sinn hlut.  Þá voru fjórir miðahafar með annan vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur. Þrír miðanna eru í áskrift en einn var keyptur í Olís á Akranesi.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!