KVENNABLAÐIÐ

Tveir skipta á milli sín 1. vinningi

Tveir heppnir miðahafar voru með 1. vinning í Lottó útdrætti gærkvöldsins og skipta því vinningsupphæðinni á milli sín. Hvor vinningshafi fær rúmlega 4,7 milljónir en annar þeirra keypti miðann í Lottó appinu og hinn miðinn var í áskrift. Einn var með bónusvinninginn og hlýtur hann rúmlega 418 þúsund krónur í vinning.

Þrír miðahafar voru með 2. vinning í Jóker og fá 100 þúsund krónur hver. Einn miði var keyptur í N1, Skógarseli 10 í Reykjavík og tveir miðar voru í áskrift.

Heildarfjöldi vinningshafa var 5.772.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!