KVENNABLAÐIÐ

Sjúklega gott sælgæti: Engin hollusta hér!

Auglýsing

Þetta er bara nammiuppskrift þannig að ef þú ert í sykurbindindi skaltu hætta að lesa STRAX…en þið hinir nautnabelgirnir megið gjarnan lesa áfram. Þetta er sjúklega gott. Einn moli með kaffinu …

  • 2 1/2 bolli af míní sykurpúðum
  • 200 grömm dökkir súkkulaðidropar til að bræða
  • 150 grömm mjólkursúkkulaðidropar til að bræða
  • 1/2 bolli mjúkt hnetusmjör
  • 1 1/2 bolli, hnetur eða möndlur

Screen Shot 2015-07-08 at 17.46.03

AÐFERÐ:

  1. Klæðið ferkantað bökunarform með bökunarpappír.  Dreifið einum bolla af míní-sykurpúðunum í formið.
  2. Setjið allt súkkulaðið og hnetusmjörið í skál sem má fara í örbylgjuna. Hitið þar til allt er vel bráðið saman en það er misjafnt eftir ofnum 30-60 sekúndur ættu að duga en stundum þarf meiri tíma jafnvel tvöfalt lengri.
  3. Blandið restinni af sykurpúðunum og hnetunum saman við súkkulaðið.
  4. Hellið blöndunni yfir sykurpúðana í forminu og kælið í allavega 4 klukkustundir. Skerið þá í stangir eins langar og ykkur finnst smart! Svo má líka skera nammið í bita!

Screen Shot 2015-07-08 at 17.45.33

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!