KVENNABLAÐIÐ

Þrír skipta með sér bónusvinningnum

Lottópotturinn verður þrefaldur næsta laugardag þar sem enginn var með allar tölurnar réttar í útdrætti gærkvöldsins. Þrír skipta með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra rúmlega 166 þúsund krónur í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Olís, Gullinbrú í Reykjavík, Olís, Brúartorgi í Borgarnesi og einn miði var í áskrift.

Tveir miðahafar voru með 2. vinning í Jóker og fá 100 þúsund krónur hver. Miðarnir voru báðir í áskrift.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!