KVENNABLAÐIÐ

Einn með fyrsta vinning

Heppinn miðahafi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti vikunnar og fær fyrir það rúmar 9,5 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn góði var keyptur í Lotto-appinu. Tveir voru með bónusvinninginn og fær hvor rúmlega 208 þúsund krónur í sinn hlut, miðarnir voru keyptir hjá Kvikk, Fitjum, Njarðvík og Olís á Akranesi.

Þrír voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jókernum og hlýtur hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir á Lotto.is og tveir voru í áskrift.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!