KVENNABLAÐIÐ

Þrír skiptu með sér hinum al-íslenska þriðja vinningi

Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út þessa vikuna í Víkingalottó, en þrír skiptu með sér hinum al-íslenska þriðja vinningi og fær hver þeirra rúmlega 655 þúsund krónur í sinn hlut. Einn miðinn var keyptur í Olís v/Gullinbrú í Reykjavík, einn í appinu og einn er í áskrift.

Enginn var með 1. vinning í Jóker en sex nældu sér í 2. vinning og fá þeir 100 þúsund krónur að launum. Tveir miðanna voru keyptir í appinu, einn á lotto.is, tveir eru í áskrift og einn var keyptur í Jolla, Helluhrauni 1 í Hafnarfirði

Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 6.686

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!