KVENNABLAÐIÐ

Heppinn miðahafi fær rúmar 52,9 milljónir í sinn hlut

Það var stálheppinn áskrifandi sem var einn með allar tölur réttar Lottó útdrætti vikunnar og fær fyrir það rúmar 52,9 milljónir í sinn hlut. Sjö miðahafar voru með bónusvinninginn og fær hver þeirra rúmlega 199 þúsund krónur. Miðarnir voru keyptir í Brekkunni, Fjarðarbraut á Stöðvarfirði, N1, Austurvegi á Selfossi, N1, Skógarseli í Reykjavík, tveir í Lottó appinu og tveir miðar voru í áskrift.

Sex miðahafar voru með 2. vinning í Jóker og fá 100 þúsund krónur hver. Miðarnir voru keyptir í N1, Ártúnshöfða í Reykjavík, Olís, Hafnarbraut á Neskaupstað og fjórir miðar voru í áskrift.

Heildarfjöldi vinningshafa var 11.847.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!