KVENNABLAÐIÐ

Tveir skiptu með sér bónusvinningnum

Auglýsing

Lottópotturinn verður fjórfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með allar tölurnar réttar í útdrætti gærkvöldsins. Tveir skipta með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra rúmlega 327 þúsund krónur í sinn hlut. Annar miðanna var keyptur á heimasíðunni lotto.is en hinn var keyptur í Lottó appinu.

Sjö miðahafar voru með 2. vinning í Jóker og fá 100 þúsund krónur hver. Miðarnir voru keyptir í N1, Lækjargötu 46 í Hafnarfirði, tveir í Lottó appinu og fjórir miðar eru í áskrift.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!