KVENNABLAÐIÐ

Heppinn miðahafi hlýtur tæpar 22 milljónir

Auglýsing

Einn heppinn Lottó miðahafi fær rúmlega 21,5 milljónir í 1. vinning í Lottó útdrætti vikunnar en miðinn var keyptur í Lottó appinu. Fjórir miðahafar voru svo með bónusvinninginn og fá rúmlega 236 þúsund krónur í sinn hlut. Tveir miðanna voru keyptir á lotto.is, einn á Holtanesti í Hafnarfirði og sá síðasti á Olís Álfheimum.

Þá var einn spilari með allar tölur í réttri röð í Jóker og fær því 1. vinninginn. Miðinn var keyptur í Happahúsinu í Kringlunni og fær viðkomandi 2 milljónir króna í vinning. Fjórir voru með 2. vinning í Jóker en tveir miðanna voru keyptir á lotto.is, einn í Lottó appinu og sá síðasti á N1 Fossvogi. Hver og einn vinningshafi fær 100 þúsund krónur.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!