KVENNABLAÐIÐ

Einn með 1. vinning í Lottó og hlýtur rúmar 10 milljónir

Það var heppinn miðahafi sem var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti vikunnar og fær fyrir það rúmar 10,1 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn góði var í áskrift. Einn var með bónusvinninginn og fær hann rúmlega 443 þúsund krónur í sinn hlut, miðinn var einnig í áskrift.

Þá var einn áskrifandi með allar tölur réttar í réttri röð í Jóker og fær því 2 milljónir króna í vinning. Þrír miðahafar voru með fjórar réttar tölur í réttri röð og hlýtur hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í  Bjarnabúð í Reykholti, á N1 í Fossvogi og einn miði var í áskrift.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!