KVENNABLAÐIÐ

Heppinn miðahafi hlýtur rúmar 2,2 milljónir

Enn eina vikuna situr 1. vinningur sem fastast í Víkingalottó og færist yfir til næstu viku.  Tveir voru með 2. vinning og voru miðarnir keyptir í Danmörku og Finnlandi, og hlýtur hvor þeirra rúmar 176 milljónir króna í vinning. Einn var með hinn al-íslenska 3.vinning og hlýtur hann rúmar 2,2 milljónir í vinning. Miðinn var keyptur á Lotto.is

Fimm voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jókernum og hlýtur hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir á Lotto.is og fjórir voru í áskrift.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!