KVENNABLAÐIÐ

Einn með 1. vinning í Lottó á laugardaginn!

Það var heppinn miðahafi sem var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti helgarinnar og fær fyrir það rúmar 9,5 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn góði var keyptur í Olís, Brúartorgi í Borgarnesi. Einn var með bónusvinninginn og fær hann rúmlega 420 þúsund krónur í sinn hlut, miðinn var í áskrift.

Enginn var með 1. vinning í Jóker í kvöld en fjórir voru með fjórar réttar tölur í réttri röð og hlýtur hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Þrír miðar voru í áskrift og einn miði var keyptur í Skaftárskála, Klausturvegi 29 á Kirkjubæjarklaustri.

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!