KVENNABLAÐIÐ

Stálheppinn miðahafi einn með fyrsta vinning og hlýtur rúmar 55 milljónir króna

Stálheppinn miðahafi sem keypti miða sinn í Lottó appinu var einn með 1. vinning í útdrætti vikunnar og hlýtur fyrir það rúmar 55 milljónir króna.

Sex miðahafar skiptu með sér bónusvinningnum og fá fyrir það rétt rúmar 135 þúsund krónur hver. Þrír miðanna voru keyptir á heimasíðunni lotto.is, einn miðinn var keyptur á Lottó appinu, einn í Euro market á Smiðjuvegi í Kópavogi og einn í N1 Ártúnshöfða í Reykjavík.

Einn miðahafi var með allar tölur réttar í réttri röð í Jóker og hlýtur hann 2 milljónir króna í sinn hlut. Miðann keypti hann á heimasíðu okkar, lotto.is.
Þá voru fimm með fjórar réttar tölur í réttri röð og fá fyrir það 100 þúsund krónur hver. Þrír miðanna voru keyptir á heimasíðunni lotto.is og hinir tveir miðarnir voru keyptir á Lottó appinu.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!