KVENNABLAÐIÐ

Sex miðahafar fá 100 þúsund krónur hver

Lottópotturinn verður tvöfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með allar tölurnar réttar að þessu sinni. Fjórir skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hver þeirra 111.260 kr. Þrír miðanna eru í áskrift en sá fjórði var keyptur í N1 á Blönduósi.

Sex voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jókernum og fá þeir 100 þúsund krónur hver í vinning. Tveir miðanna eru í áskrift, einn var keyptur á lotto.is, en hinir voru keyptir í Kaupfélagi V-Húnvetninga á Hvammstanga, Hagkaupum í Smáralind og Extra, Kaupangi á Akureyri.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!