KVENNABLAÐIÐ

Hinn al-íslenski 3. vinningur gekk út í gærkvöldi

Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni í Vikinglotto en tveir heppnir spilarar í Noregi og Danmörku skiptu með sér 2. vinningi og hlýtur hvor um sig tæpar 18 milljónir króna í vinning. Hinn al-íslenski 3. vinningur gekk út og hlýtur hann 1.777.940 krónur í vinning. Miðinn var í áskrift.

Tveir voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jókernum og hlýtur hvor þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir á heimasíðunni Lotto.is og á appinu.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!